Færri íbúðir seldust í ágúst en júlí
Þegar ágúst 2010 er borinn saman við júlí 2010 fækkar kaupsamningum um 24,9% og velta minnkar um 14,8%. Í júlí 2010 var þinglýst 281 kaupsamningi, velta nam 7,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 27 milljónir króna.
Þegar ágúst 2010 er borinn saman við ágúst 2009 fjölgar kaupsamningum um 37% og velta eykst um 39,1%. Í ágúst 2009 var þinglýst 154 kaupsamningum, velta nam 4,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna, samkvæmt vef Þjóðskrár.
Makaskiptasamningar tæp 19% allra samninga
Makaskiptasamningar voru 38 í ágúst 2010 eða 18,9% af öllum samningum. Í júlí 2010 voru makaskiptasamningar 50 eða 18,9% af öllum samningum. Í ágúst 2009 voru makaskiptasamningar 45 eða 30,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.



















