Viðskipti
| AFP
| 2.9.2010
| 12:34
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar
Miklar sveiflur hafa verið á heimsmarkaðsverði á olíu undanfarna daga. Olíuverð hækkaði í gær en hefur nú lækkað á ný. Í Lundúnum hefur Brent Norðursjávarolía til afhendingar í október lækkað um 65 sent og er 75,70 dalir tunnan. Í New York hefur hráolía lækkað um 17 sent og er 73,74 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















