Kaupa hlut í Remake Electric
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest hafa undirritað samning um kaup á hlutafé í hátæknifyrirtækinu Remake Electric ehf.
Fjárfestingin
verður í nokkrum áföngum og eru greiðslur háðar framgangi verkefna. Að þeim
loknum mun Nýsköpunarsjóður eiga 18% hlut í félaginu og Eyrir Invest 20% hlut.
ReMake Electric hefur þróað rafskynjara sem kemur í stað hefðbundinna rafmagnsöryggja og kviknaði hugmyndin hjá Hilmi Inga Jónssyni, frumkvöðli, þegar hann starfaði sem rafvirki, vegna skorts á upplýsingum til bilanaleitar, samkvæmt fréttatilkynning.
„ Auk þess að nýtast vel sem greiningartæki þá eykur rafskynjarinn öryggi með því gefa hljóðviðvaranir vegna yfirálags. Einnig gefur rafskynjarinn viðskiptavinum tækifæri á að fylgjast betur með eigin orkunotkun. Rafskynjarinn er einkaleyfisvarinn í Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og Kína."



















