Landsbankinn setur Límtré í sölu
Landsbankinn
mun setja fyrirtækið Límtré Vírnet ehf. í opið söluferli og verður það auglýst
í lok þessa mánaðar. Rekstrarfélag sem
Landsbankinn stofnaði tók við rekstri
fyrirtækisins 25. maí af þrotabúi BM Vallár hf. og þá lýsti bankinn því yfir að
hann hygðist selja reksturinn innan 6 mánaða.
Framleiðslustarfsemi í Borgarnesi, á Flúðum og í Reykholti, sem heyra undir Límtré Vírnet ehf., voru hluti af þeim rekstri BM Vallár hf. sem fjármagnaður var af Landsbankanum.
Segir í tilkynningu frá Landsbankanum að tekist hafi að tryggja 53 störf á þessum stöðum auk 12 starfa á höfuðborgarsvæðinu þegar bankinn yfirtók reksturinn. Var flestöllum starfsmönnum á fyrrnefndum starfsstöðum boðið starf í hinu nýja félagi.
Aðalstöðvar Límtrés Vírnets ehf. eru í Borgarnesi og þar eru framleiddar klæðningar, áfellur og saumur auk þess sem þar er blikksmiðja, járnsmiðja og rafmagnsverkstæði. Á Flúðum er límtrésverksmiðja félagsins, í Reykholti er yleiningaframleiðsla og söluskrifstofa og lager er í Kópavogi auk hluta yfirstjórnar og skrifstofuhalds.
Framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins er Stefán Logi Haraldsson, sem áður var aðstoðarforstjóri BM Vallár og þar áður framkvæmdastjóri Límtré Vírnets ehf.



















