Skuldabréf Jeratúns á athugunarlista
Kauphöll Íslands hefur sett skuldabréf Jeratúns ehf. á
athugunarlista en í árshlutareikningi, sem birtur var í síðustu viku, kom fram að eigið fé félagsins var um mitt árið neikvætt um 46 milljónir króna þrátt fyrir 25 milljóna króna hlutafjáraukningu á tímabilinu.
Jeratún er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði.
10 milljóna króna tap var á rekstri félagsins á fyrri hluta ársins. Segir í umfjöllun endurskoðenda, að sökum bágrar fjárhagsstöðu félagsins sé ljóst að nokkur óvissa sé um rekstrarhæfi félagins og ljóst að leigutekjur Jeratúns, sem greiddar séu af ríki og þeim sveitarfélögum sem standa að rekstri félagsins, standi ekki undir rekstri félagsins til að Jeratún geti staðið við skuldbindingar sínar,



















