Viðskiptaflétta þar sem allt var ofmetið jafnt

Fons keypti Sterling á 4 milljarða í mars 2005. Í október sama ár var félagið, ... stækka

Fons keypti Sterling á 4 milljarða í mars 2005. Í október sama ár var félagið, sem var rekið með tapi keypt á 15 milljarða af almenningshlutafélaginu FL Group Reuters

Jón Sigurðsson, þá framkvæmdastjóri og síðar forstjóri FL Group, virðist hafa haft yfirumsjón með undirbúningi þeirrar viðskiptafléttu sem síðar leiddi til stofnunar Northern Travel-Holding (NTH). Þetta er meðal þess sem fram kemur í tölvupóstsamskiptum milli yfirmanna hjá FL Group.

Viðskiptablaðið fjallar í dag um það hvernig helstu stjórnendur FL Group voru að setja upp viðskipti þar sem þeir vissu, og raunar stefndu á, að ofmeta þær eignir sem undir voru. Það er danska flugfélagið Sterling og Iceland Express.

Sömu sögu er að segja af þáverandi eigendum Iceland Express, eignarhaldsfélaginu Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristjánssonar.

Losnuðu við Sterling út af efnahagsreikningi FL Group

Lykilatriði í viðskiptunum, samkvæmt Jóni, virðast vera að allir sem kæmu að þeim ofmætu þær eignir sem renna ættu inn í Scantravel, sem síðar varð NTH, jafn mikið.

Hugmyndin með því að selja eignirnar á yfirverði til nýs félags í þeirra eigu var að losa FL Group við Sterling af efnahagsreikningi sínum, losa félagið undan ábyrgðum sem það hafði undirgengist vegna Sterling, Fons undan því að greiða tæpa sex milljarða vegna tapreksturs Sterling og að búa til falska eign á efnahagsreikningum bæði Fons og FL Group með því að bókfæra söluhagnað og seljendalán langt yfir raunvirði.

 NTH keypti Sterling á 20 milljarða og Iceland Express á 6 milljarða

Northern Travel Holding (NTH) var stofnað í árslok 2006 til að kaupa ferðaþjónustutengdar eignir af FL Group og Fons. Um var að ræða Sterling Airlines, Astraeus, Iceland Express, Heklu Travel og Ticket Travel Group. Heildarvirði viðskiptanna samkvæmt áætlunum þeirra sem teiknuðu þau upp var um 28 milljarðar króna. Mest munaði þar um kaup NTH á Sterling á 20 milljarða króna og Iceland Express á 6 milljarða króna, samkvæmt ýtarlegri úttekt Viðskiptablaðsins í dag.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu dag og hafa sumar ekki verið hærri síðan fyrir hrun. Myndin ...

Vísitölur aftur eins og 2008

Í gær, 22:21 Dow Jones vísitalan hefur ekki verið hærri síðan fyrir hrunið 2008, en hún hækkaði í dag um 130 stig, samkvæmt frétt á The Washington Post. Þá er svo komið að Nasdaq vísitalan hefur ekki verið hærri síðan árið 2000, en hún hækkaði um 1,5% í dag. Standard og Poor´s hækkaði einnig mat sitt um 1,3%. Meira »
Skýrsla um fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins

LV fagnar útkomu skýrslunnar

Í gær, 18:32 Lífeyrissjóður verzlunarmanna fagnar útkomu skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skýrslan verður tekin til ítarlegrar skoðunar á vettvangi sjóðsins, að því er segir í tilkynningu í dag. Meira »

Spá hækkun stýrivaxta

Hagfræðideild Landsbankans spáir hækkun stýrivaxta í febrúar.
Í gær, 16:38 Hagfræðideild Landsbankans segir í hagsjá sinni, sem kom út í dag, að meiri líkur en minni séu á því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti hinn 8. febrúar nk. Meira »

Samkeppniseftirlitið með auknar heimildir

Samkeppniseftirlitið
Í gær, 14:41 Samkeppniseftirlitið hyggst beita markaðsrannsóknum sem undanfara hugsanlegra aðgerða, sem það hefur fengið heimild til að beita til að efla samkeppni. Aðgerðirnar geta m.a. falist í uppskiptingu markaðsráðandi fyrirtækja. SE óskar nú eftir umræðu um mótun leiðbeininga til beitingar þessarar heimildar. Meira »

Samkomulag í sjónmáli

Rætt hefur verið um að lánadrottnar gefi eftir um helming skulda gríska ríkisins.
Í gær, 12:08 Samkomulag um endurskipulagningu um 200 milljarða evra skuldar gríska ríkisins er í burðarliðnum, samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Meira »

Engar eignir í búi Sólmons

Magnús Ármann.
Í gær, 11:45 Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú Sólmons ehf. en stjórnarformaður félagsins var Magnús Ármann. Alls voru lýstar kröfur í búið rúmir 3,3 milljarðar króna. Meira »

36% hlutur í opið söluferli

Í gær, 15:23 Eigendur að 36% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut þeirra í félaginu. Meira »

Þremur sagt upp

Í gær, 12:15 Þremur var sagt upp störfum í útibúum Byrs og Íslandsbanka í Hafnarfirði í janúar.  Meira »

Hækkun í Evrópu

Kauphöllin í Frankfurt
Í gær, 11:55 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í morgun en fjárfestar bíða með mikilli eftirvæntingu eftir að tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði birtar síðar í dag. Meira »

Afgangurinn eykst um 49%

Sjávarútvegur mun væntanlega skila meiri útflutningstekjum í ár en í fyrra
Í gær, 11:17 Afgangur af vöruskiptum í janúar er mun meiri en hann var í janúar í fyrra, eða sem nemur um 49% á föstu gengi, og einnig meiri en hann hefur að jafnaði verið síðasta árið. Meira »

Lánshæfiseinkunn Sharp lækkuð

Sharp framleiðir meðal annars sjónvarpstæki
Í gær, 09:48 Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn japanska raftækjaframleiðandans Sharp um eitt þrep, úr A- í BBB+. Meira »

Ekkert fékkst upp í 7,8 milljarða kröfur

Kaupþing
Í gær, 11:28 Engar eignir fundust í búi K08, félags í eigu Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, en lýstar kröfur í búið námu tæpum 7,8 milljörðum króna. Meira »

Hverjir ná árangri á Twitter? myndskeið

Alkemistinn mbl 42 Twitter
Í gær, 10:11 Ísendingar eru nú í auknum mæli farnir að tileinka sér samfélagsmiðilinn Twitter. Á sama tíma eru sífellt fleiri að spyrja hvað þetta fyrirbæri sé eiginlega. Twitter er örblogg, takmarkað við 140 stafi. Sérstaða Twitter byggist á því að þar vingast maður ekki við neinn, gerist ekki aðdáandi eða fer í hópa. Meira »

Kína er ekki að kaupa Evrópu

Kanslari Þýskalands, Angela Merkel ásamt forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao.
Í gær, 09:41 Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, segir að Kínverjar hafi hvorki áhuga né getu til þess að „kaupa Evrópu“ en ýmsir hafa haft áhyggjur af auknum fjárfestingum Kínverja í evru-ríkjunum. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir