Viðskipti
| AFP
| 3.9.2010
| 20:30
Bjartsýni á Wall Street
Bandarískar hlutabréfavísitölur hækkuðu í kvöld þar sem lítilsháttar aukning atvinnuleysis í Bandaríkjunum vekur vonir meðal fjárfesta um að staða efnahagsmála sé kannski eins slæm eins og margir hafa talið að undanförnu. Nam atvinnuleysið 9,6% í ágúst en var 9,5% í júlí.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 127,83 stig eða 1,24% og er 10.447,93 stig. Nasdaq hækkaði um 1,53% og S&P 500 um 1,32%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















