Carnegie kaupir HQ bankann
Í fréttatilkynningu frá HQ Bank kemur fram að stjórn bankans hafi ákveðið að selja öll hlutabréf hans til Carnegie. Kaupverðið er 268 milljónir sænskra króna, 4.427 milljónir króna, og hefur sænska fjármálaeftirlitið samþykkt kaupin.
Þetta þýðir að Carnegie tryggir allar innistæður viðskiptavina HQ Bank og starfsemi bankans hefst á ný á mánudag.
Á vef Carnegie kemur fram að fjárhagsleg staða sameinaðs félags sé sterk, eiginfjárhlutfall Carnegie sé 20%. Um liðna helgi vildi Carnegie yfirtaka starfsemi HQ en fjármálaeftirlitið kom í veg fyrir það þannig að loka varð bankanum. HQ, sem er stýrt af tilsjónarmanni á vegum fjármálaeftirlitsins, Biörn Rieses, hefur verið lokaður alla vikuna þar sem kaupanda var leitað án árangurs.
Bæði HQ Bank og Carnegie eru með tengsl við Ísland. HQ Bankinn keypti eignir Glitnis í Svíþjóð skömmu eftir hrun Glitnis. Var talið að HQ hafi fengið Glitni á brunaútsölu svo lágt verð fékkst fyrir starfsemi Glitnis í Svíþjóð.
Carnegie var að hluta í eigu Milestone áður en bankinn var þjóðnýttur og Milestone, fjárfestingafélag Wernersbræðra, fór í þrot.




















