Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði á ný í dag eftir að hafa hækkað tvo daga í röð. Í New York lækkaði verð á hráolíu til afhendingar í október um 42 sent og er 74,60 dalir tunnan. Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 26 sent og er 76,67 dalir tunnan.
Í gær, 22:21
Dow Jones vísitalan hefur ekki verið hærri síðan fyrir hrunið 2008, en hún hækkaði í dag um 130 stig, samkvæmt frétt á The Washington Post. Þá er svo komið að Nasdaq vísitalan hefur ekki verið hærri síðan árið 2000, en hún hækkaði um 1,5% í dag. Standard og Poor´s hækkaði einnig mat sitt um 1,3%.
Meira
Í gær, 18:32
Lífeyrissjóður verzlunarmanna fagnar útkomu skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skýrslan verður tekin til ítarlegrar skoðunar á vettvangi sjóðsins, að því er segir í tilkynningu í dag.
Meira
Í gær, 16:38
Hagfræðideild Landsbankans segir í hagsjá sinni, sem kom út í dag, að meiri líkur en minni séu á því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti hinn 8. febrúar nk.
Meira
Í gær, 14:41
Samkeppniseftirlitið hyggst beita markaðsrannsóknum sem undanfara hugsanlegra aðgerða, sem það hefur fengið heimild til að beita til að efla samkeppni. Aðgerðirnar geta m.a. falist í uppskiptingu markaðsráðandi fyrirtækja. SE óskar nú eftir umræðu um mótun leiðbeininga til beitingar þessarar heimildar.
Meira
Í gær, 12:08
Samkomulag um endurskipulagningu um 200 milljarða evra skuldar gríska ríkisins er í burðarliðnum, samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Meira
Í gær, 11:45
Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú Sólmons ehf. en stjórnarformaður félagsins var Magnús Ármann. Alls voru lýstar kröfur í búið rúmir 3,3 milljarðar króna.
Meira
Í gær, 15:23
Eigendur að 36% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut þeirra í félaginu.
Meira
Í gær, 11:55
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í morgun en fjárfestar bíða með mikilli eftirvæntingu eftir að tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði birtar síðar í dag.
Meira
Í gær, 11:17
Afgangur af vöruskiptum í janúar er mun meiri en hann var í janúar í fyrra, eða sem nemur um 49% á föstu gengi, og einnig meiri en hann hefur að jafnaði verið síðasta árið.
Meira
Í gær, 11:28
Engar eignir fundust í búi K08, félags í eigu Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, en lýstar kröfur í búið námu tæpum 7,8 milljörðum króna.
Meira
Í gær, 10:11
Ísendingar eru nú í auknum mæli farnir að tileinka sér samfélagsmiðilinn Twitter. Á sama tíma eru sífellt fleiri að spyrja hvað þetta fyrirbæri sé eiginlega. Twitter er örblogg, takmarkað við 140 stafi. Sérstaða Twitter byggist á því að þar vingast maður ekki við neinn, gerist ekki aðdáandi eða fer í hópa.
Meira
Í gær, 09:41
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, segir að Kínverjar hafi hvorki áhuga né getu til þess að „kaupa Evrópu“ en ýmsir hafa haft áhyggjur af auknum fjárfestingum Kínverja í evru-ríkjunum.
Meira
Ogilvy um prentauglýsingar. David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingumMeira