Fréttaskýring: Fjárfesting á Íslandi minnkar um fjórðung milli ára

Peningar. króna stækka

Peningar. króna mbl.is/Heiðar

Morgunblaðið Þórður Gunnarsson thg@mbl.is

Fjárfesting dróst saman um rúmlega 26% á öðrum fjórðungi milli ára miðað við óárstíðarleiðréttar tölur. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar um verga landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi sem birtar voru í gær. Sé litið til fyrri árshelmings milli ára nemur samdrátturinn tæpum fimmtán prósentustigum.

Einkaneysla dregst einnig hratt saman, þó ekki með sama hraða og fjárfestingin. Frá fyrsta ársfjórðungi til annars á þessu ári nam samdrátturinn 3,2%, en milli ára er samdrátturinn 2,1%.

Hagstofan birti að sama skapi endurskoðaðar hagvaxtartölur fyrir síðasta ár. Samdráttur vergrar landsframleiðslu nam þá 6,8%, en fyrri tölur gerðu ráð fyrir 6,5% samdrætti. Fram kemur í tölum Hagstofunnar að samdráttur vergrar landsframleiðslu á fyrri helmingi árs milli áranna 2009 og 2010 nemur 7,3% að raunvirði. Spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur veg og vanda af hagstjórn á Íslandi í dag, gerði ráð fyrir 3% samdrætti landsframleiðslu á árinu 2010. Ef heldur fram sem horfir má gera ráð fyrir að endanlegur hagvöxtur í ár verði mun minni en spár sjóðsins gera ráð fyrir.

Aflvakar hagvaxtar gefa eftir

Helstu aflvakar hagvaxtar, fjárfesting og einkaneysla, hafa dregist hratt saman síðastliðin tvö ár. Fyrstu tölur Hagstofunnar um hagvöxt á fyrsta fjórðungi ársins sýndu 0,6% vöxt, sem mátti þó fyrst og fremst rekja til birgðaaukningar í sjávarafurðum eftir vetrarvertíð. Endurskoðaðar tölur leiða í ljós að í raun varð samdráttur upp á 0,3%. Það þýðir að samfelldur samdráttur hefur verið í landsframleiðslu milli fjórðunga allt frá lokum þriðja ársfjórðungs 2008.

Samkvæmt algengri skilgreiningu er kreppu opinberlega talið lokið þegar vöxtur hefur verið tvo ársfjórðunga í röð. Ljóst er að miðað við þróun helstu hagvísa er nokkuð í land með kreppulok. Þegar fyrstu tölur um hagvöxt á fyrsta fjórðungi bárust benti greiningardeild Íslandsbanka á að kreppan hefði náð lágmarki sínu. Einnig sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að kreppunni væri lokið. Endurskoðaðar tölur leiða annað í ljós.

Á þetta benti Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, á vefsíðu samtakanna í gær. „Þetta er þvert á þau skilaboð sem stjórnmálamenn eru að senda okkur um að botninum sé náð og að betri tíð sé framundan. Vissulega væri óskandi að svo væri en hagtölur benda því miður til annars,“ var haft eftir Bjarna. Þess ber að geta að Hagstofan slær varnagla við því að afleiðingar bankahrunsins á haustmánuðum valdi áfram óvissu um hagtölur, sem sæta sífelldri endurskoðun.

Mun verri staða en í OECD

Verg landsframleiðsla OECD ríkjanna í heild er talin hafa dregist saman um 3,3% á síðasta ári. Á tímabilinu 1997 til 2009 er því aðeins að ræða um annað skiptið sem hagvöxtur á Íslandi er minni en á OECD-svæðinu, en það gerðist síðast árið 2002, að því er fram kemur í Hagtíðindum. Sé litið til tímabilsins 1990-2009 hefur meðalvöxtur á Íslandi verið meiri en á OECD-svæðinu.

Versnandi skuldahlutföll

Fram kom í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins í mars síðastliðnum að heildarskuldir ríkissjóðs hefðu numið 1.167 milljörðum króna við lok árs, eða rúmlega 78% af landsframleiðslu. Samkvæmt markaðsfréttum Lánamála ríkisins námu heildarskuldir ríkissjóðs við lok júlímánaðar um 1.297 milljörðum króna. Á síðasta ári var verðbólga mikil, svo að verg landsframleiðsla að nafnvirði dróst ekki saman. Verði samdráttur landsframleiðslu á síðari helmingi ársins ámóta og á þeim fyrri má reikna með að verg landsframleiðsla verði undir 1.500 milljörðum á þessu ári. Því þyrfti ekki að koma á óvart þó skuldastaða ríkissjóðs mundi liggja nærri 90% undir lok ársins. Halli verður á fjárlögum næsta árs, ekki síst vegna aukinna vaxtagjalda ríkissjóðs, sem mun síðan þurfa að fjármagna að einhverju leyti með aukinni lántöku. Fyrir utan það sem er nefnt hér að ofan ber að líta til lífeyrisskuldbindinga ríkissjóðs, en Lífeyrissjóður starfsmanna er rekinn með ríkisábyrgð. Fram hefur komið að lífeyrissjóðir með ríkisábyrgð hefðu haft tryggingafræðilegan halla upp á 500 milljarða í árslok 2008.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir