Stálu frá og eyðilögðu FL-Group

Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason

Vilhjálmur Bjarnason, fjárfestir og hluthafi í FL-Group, segir að stjórnarmenn FL-Group hafi í aðdraganda bankahrunsins 2008 notfært sér félagið, stolið úr þvi og hreinlega eyðilagt það. Hann segir að gögn sem hann hafi fengið í hendur frá lögreglu sýni fram á einbeittan ásetning til afbrota í hagnaðarskyni.

„Ætluðu þeir að valda félaginu tjóni, það er að segja ætluðu þeir að stela af félaginu og stela af öðrum hluthöfum?“ segir Viljálmur og kveðst telja að svo hafi verið. Önnur ályktun verði ekki dregin af gögnunum.

Gögnin sem um ræðir færa, að því er fram kom í Viðstkiptablaðinu á fimmtudag, sönnur á að viðskipti með Sterling-flugfélagið og stofnun Northern Travel Holding voru fyrst og fremst gerð til að falsa eiginfjárstöðu og fegra efnahagsreikninga þeirra félaga sem að viðskiptunum komu.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, sagði í samtali við Morgunblaðið 21. apríl síðastliðinn að millifærslan sem væri rannsökuð sem alvarlegt efnahagsbrot.

„Það var ekkert eðlilegt hvernig menn tóku þessa tuttugu milljarða [söluverð Sterling] og skiptu þeim á milli sín,“ segir Vilhjálmur. Hann segir að ótilhlýðileg vinnubrögð og starfshættir innan félagsins hafi þó ekki verið bundin við þetta mál, þeirra hafi gætt víðar, í töluverðan tíma og margir hafi beðið tjón.

„Og hverjir eru tjónþolar í þessu máli? Það eru hluthafarnir og það eru lánadrottnar, meðal annars lífeyrissjóðir. Það er verið að skerða lífeyrisréttindi landsmanna,“ segir Vilhjálmur.

„Ég byrjaði nú á því að gera athugasemdir við Sterling-málið árið 2006 þannig að ég er búinn að halda þessu vakandi nokkuð lengi,“ segir Vilhjálmur og kveðst meðal annars hafa gert athugasemdir við lán til Fons sem fjármagna átti kaup á Sterling og verðlagningu á sama félagi. Árin 2007 og 2008 gerði hann einnig athugasemdir við rekstur FL-Group.

„Ég beið tjón á mörgum vígstöðvum, ég beið tjón í lífeyrissjóðum, ég beið tjón á hlutafjáreign, ég beið tjón á hlutabréfaeign í bönkum því þetta rústaði til dæmis Glitni. Auðvitað hafði þetta mikil áhrif út á við, keðjuverkandi áhrif,“ segir Vilhjálmur um tjón sitt en segir ekki skipta máli nákvæmlega hve mikið tjón hann mátti sjálfur þola.

Vilhjálmur segist hafa verið í miklu sambandi við lögmenn í tengslum við málið en kveður ekki liggja fyrir hvenær frekari hreyfinga á málinu er að vænta. Skoða þurfi það ofan í kjölinn og vanda undirbúning þess áður en það fer fyrir dómstóla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

05:30 Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »
Iceland Foods.

Söluferli Iceland Foods framlengt

Í gær, 21:05 Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
Í gær, 19:42 Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
Í gær, 16:05 Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

Í gær, 11:31 Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
Í gær, 10:41 Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

Í gær, 19:02 Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
Í gær, 15:14 Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

Í gær, 10:59 Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
Í gær, 09:50 Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

í gær Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
Í gær, 09:57 Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
í gær Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Mun snarlækka verð á þjónustu

Vélbúnaður fluttur í gagnaverið á Ásbrú í Reykjanesbæ.
í gær Í gær tilkynnti Verne Global fyrstu viðskiptavini gagnaversins sem fyrirtækið hefur reist við Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru fyrirtækin CCP og GreenQloud. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir