Viðskipti
| AFP
| 5.9.2010
| 15:28
Lítil sem engin viðskipti við Íran
Flestir bankar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eru hættir að senda peninga til Írans eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti hertar refsiaðgerðir gagnvart Íran. Mikil viðskiptatengsl eru milli Íran og furstadæmanna.
Stórlega hefur dregið úr viðskiptunum eftir samþykkt SÞ en fyrirtæki sem grunuð eru um brot á viðskiptabanni í Íran eiga á hættu að vera lokað. Alls búa um 400 þúsund Íranar í furstadæmunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















