Viðskipti
| mbl
| 5.9.2010
| 10:08
Vaxtahækkun ólíkleg í Bretlandi
Ólíklegt þykir að Englandsbanki boði stýrivaxtahækkun á fimmtudag, næsta vaxtaákvörðunardegi bankans. Stýrivextir eru 0,5% í Bretlandi og hafa þeir verið óbreyttir í átján mánuði. Samkvæmt frétt á vef Telegraph er líklegt að vextir verði hækkaðir mikið árið 2012.
Nefndarmenn í peningastefnunefnd Englandsbanka hafa ýmsir ýjað að því að þeir vildu gjarna hækka vexti svo þeir verði nær eðlilegu vaxtastigi. Meðal þeirra er seðlabankastjórinn sjálfur, Mervyn King, en ekki sé rétti tíminn til þess nú.
Telja hagfræðingar sem Telegraph leitaði til að stýrivextir verði ekki hækkaðir á næstunni og jafnvel ekki fyrr en á síðari hluta næsta árs. Er jafnvel gert ráð fyrir að hækkun þeirra verði ekki að veruleika fyrr en árið 2012 en þá muni þeir jafnvel hækka um 2% og fara í 2,5%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















