Viðskipti
| mbl
| 8.9.2010
| 16:35
Fluttu 211 þúsund farþega
Icelandair flutti rúmlega 211 þúsund farþega í ágúst sem er 12% fleiri farþegar en í ágúst í fyrra. Þá jókst sætanýting félagsins um 3%. Fyrstu átta mánuði ársins hefur felagið flutt 1.019.248 farþega sem er 11% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.
Þetta kemur fram í nýjum flutningatölum frá Icelandair Group. Tölurnar eru ekki eins jákvæðar fyrir Flugfélag Íslands en það félag flutti 36.682 farþega í ágúst sem er 6% samdráttur. Það sem af er árinu hefur félagið flutt 233.587 farþega sem er 9% minna en í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















