Kilroy opnar útibú á Íslandi
Norræna ferðaskrifstofan Kilroy hefur opnað útibú á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að Kilroy sé þekkt fyrir að bjóða námsmönnum og ungu fólki upp á ævintýraferðir um allan heim. Nú aukist möguleiki Íslendinga á að komast á hagkvæman hátt út fyrir hefðbundnar slóðir með innreið Kilroy á íslenska markaðinn.
„Sérstaða Kilroy hefur í gegnum tíðina falist í að aðstoða ungt fólk í ævintýraleit við að skipuleggja ferðir til framandi landa, allt frá styttri ferðalögum upp í heimsreisur. Nýlega var þjónusta Kilroy aukin með Kilroy Education, sem er ráðgjöf og þjónusta fyrir þá sem eru að leita að námi erlendis,“ segir jafnframt í tilkynningu.
Formleg opnunarhátíð Kilroy á Íslandi verður haldin fimmtudaginn 9. september. Nánari upplýsingar eru á Kilroy.is.



















