Viðskipti
| AFP
| 8.9.2010
| 7:24
Lækkun á olíumörkuðum
Verð á hráolíu hefur lækkað í viðskiptum í Asíu í morgun og er tunnan komin niður fyrir 74 Bandaríkjadali. Í New York hefur hráolía til afhendingar í október lækkað um 23 sent og er 73,86 dalir tunnan.
Í Lundúnum hefur Brent Norðursjávarolía lækkað um 14 sent og er 77,60 dalir tunnan. Er lækkunin í morgun rakin til lækkunar á verðbréfamörkuðum í Asíu í morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















