Viðskipti
| mbl
| 8.9.2010
| 17:28
Nauðasamningur Exista samþykktur
Kröfuhafar Exista ehf. samþykktu með 97,35% atkvæða frumvarp til nauðasamnings fyrir Exista á fundi í dag. Samkvæmt nauðasamningnum fá kröfuhafar full yfirráð yfir félaginu.
Samkvæmt frumvarpinu að nauðasamningi eignast kröfuhafar Exista að fullu en félagið verður rekið áfram í breyttri mynd. Gert er ráð fyrir að félagið geti þjónustað og aukið verðmæti eigna sinna með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi.
Nauðasamningsferlið hefur ekki áhrif á daglegan rekstur dótturfélaga Exista sem eru Vátryggingafélag Íslands hf., Líftryggingafélag Íslands, Lýsing hf. og Skipti hf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















