Viðskipti
| mbl
| 8.9.2010
| 15:41
Tekjur Real Madrid 66,8 milljarðar króna
Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid hagnaðist um 24 milljónir evra, 3.623 milljónir króna, á síðasta keppnistímabili og er það aukning um 11,5% á milli tímabila. Tekjur félagsins námu 442,3 milljónum evra, 66,8 milljörðum króna, og eru þetta hæstu tekjur sem nokkuð íþróttafélag getur státað af.
Á tímabilinu 2008-2009 nam hagnaður Real Madrid 21,5 milljónum evra.
Real Madrid hefur eyddi yfir 250 milljónum evra í nýja leikmenn á síðasta leiktímabili. Meðal annars var portúgalski leikmaðurinn Cristiano Ronaldo keyptur af enska liðinu Manchester United.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















