Vilja eignast FIH bankann
Danskri fjölmiðlar segja, að hafið sé tilboðastríð milli danskra lífeyrissjóða og erlends aðila um FIH Erhversvbank, sem er í eigu skilanefndar Kaupþings en veðsettur Seðlabanka Íslands.
Fréttavefur Børsen hefur eftir sjónvarpsstöðinni TV2 News, að lífeyrissjóðirnir ATP og PFA hafi tekið upp samvinnu um kaup á FIH. Breski fjárfestingarsjóðurinn Triton hafi hins vegar einnig augastað á bankanum.
FIH er fimmti stærsti banki Danmerkur. Stjórnendur FIH hafa ítrekað sagt að fjármálahrunið á Íslandi hafi engin áhrif haft á stöðu og rekstur bankans en FIH var að fullu í eigu Kaupþings áður en íslenski bankinn féll. Danski bankinn starfar samkvæmt dönskum reglum og undir eftirliti danska fjármálaeftirlitsins.
Mikið tap var á rekstri FIH fyrstu misserin eftir að fjármálakreppan skall á. Tap á síðasta ári var 147 milljónir danskra króna fyrir skatt, aðallega vegna afskrifta lána. Á þessu ári er hins vegar útlit fyrir um 500 milljóna danskra króna hagnað af rekstrinum.
TV2 segir, að skilanefnd Kaupþings sé nú að selja bankann en Morgan Stanley sjái um söluferlið.



















