Forstjóri bresks blaðaútgefanda hrökklast úr starfi
David Montgomery. Reuters
David Montgomery, forstjóri breska útgáfufélagsins Mecom, neyðist til að segja af sér störfum vegna óánægju hluthafa með miklar skuldir og versnandi rekstur. Mecom á meðal annars Berlingske Media, útgefanda Berlingske Tidende og fleiri blaða í Danmörku.
Danskir sérfræðingar segja líklegt, að Mecom reyni nú að selja Berlingske Media.
Montgomery stofnaði Mecom fyrir áratug eftir að hafa áður starfað við blaðaútgáfu hjá Mirror Group. Í tilkynningu frá Mecom segir, að Montgomery muni hætta störfum í janúar. Gengi hlutabréfa Mecom hækkaði um 7% þegar tilkynningin barst.
Reutersfréttastofan hefur eftir heimildarmönnum, að tveir hluthafar, sem eiga saman yfir helming hlutafjár Mecom, hafi í rúmt ár verið afar óánægðir með viðskiptastefnu Montgomerys.
Mecom hefur á síðustu árum keypt mikið af fyrirtækjum en síðan neyðst til að selja þau aftur. Við það söfuðust upp skuldir og í maí lögðu hluthafar Mecom til 140 milljóna punda hlutafé til að koma í veg fyrir skuldakreppu



















