Litlar breytingar á skuldatryggingaálagi

.

. mbl.is

Skuldatryggingarálag á evruskuldir ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Í lok dags í gær stóð álagið í 315 punktum (3,15%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er á svipuðu róli og það hefur verið síðasta mánuðinn.

Þegar skoðuð er þróunin frá upphafi árs kemur í ljós að skuldatryggingarálag ríkissjóðs hefur lækkað talsvert en ekki er hægt að segja hið sama um meðaltal ríkja í Vestur Evrópu, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Í raun hefur hið gagnstæða verið að gerast á markaði með skuldatryggingar á evrópsk ríki og hefur meðaláhættuálag á ríki í Vestur Evrópu verið að mjakast upp á við.

„Hækkun á meðaláhættuálaginu undanfarið má m.a. rekja til Írlands. Þannig stóð álagið á írska ríkið í byrjun ágúst síðastliðinn í 209 punktum en í lok dags í gær var það komið upp í 371 punkt sem er annað hæsta álagið á meðal þeirra ríkja í Vestur Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir.

Þessi mikla hækkun á álaginu á írska ríkið kemur þó ekki alls kostar á óvart enda hefur ríkið legið undir mikilli gagnrýni vegna aðkomu þess að bankakerfinu. Eins og kunnugt er tók írska ríkið gríðarlegar skuldir á sig til þess að bjarga bankakerfinu.

Af þessum sökum hefur lánshæfismat írska ríkisins versnað þó nokkuð undanfarið. Síðast lækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor¿s (S&P) lánshæfiseinkunn þess fyrir langtímaskuldbindingar í AA-. Írska ríkið hefur sömu einkunn hjá matsfyrirtækinu Fitch en einkunn þess hjá Moody´s er svo þrepi hærra.

Fyrir hrun hafði írska ríkið hæstu lánshæfiseinkunn hjá þessum þremur matsfyrirtækjum," segir í Morgunkorni.

Þrátt fyrir að skuldatryggingarálagið á írska ríkið sé töluvert hærra en álagið á hið íslenska er lánshæfismat hins fyrrnefnda mun betra. Fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt eru einkunnir Íslands lægstar í bókum Fitch, þ.e. BB+, sem er þrepi neðar en einkunnir landsins, þ.e. BBB-Baa3, hjá Fitch og Moody´s.

„Eru lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins þar með 6 til 7 þrepum lægri en einkunnir hins írska og er nokkuð ljóst að þessir tveir mælikvarðar á áhættu eru á öndverðum meiði um innbyrðis lánshæfisáhættu ríkjanna tveggja.

Auk þess eru lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins á neikvæðum horfum í bókum allra fyrirtækjanna á meðan einkunnir írska ríkisins eru á neikvæðum horfum hjá S&P en stöðugar í bókum hinna tveggja," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir