Viðskipti
| mbl
| 9.9.2010
| 17:26
Sænskt félag vill kaupa FIH
Fleiri fjárfestar eru nú nefndir til skjalanna sem vilji taka þátt í kaupum á danska bankanum FIH Erhvervsbank. Að sögn danskra fjölmiðla hefur sænska tryggingafélagið Folksam gengið til liðs við tvo danska lífeyrissjóði, sem freista þess að kaupa bankann.
Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar TV2 vildu lífeyrissjóðirnir fá fleiri til liðs við sig til að standa betur að vígi í baráttu við breska fjárfestingarfélagið Triton og fimm danska lífeyrissjóði um FIH.
FIH, sem er í umsjón skilanefndar Kaupþings, staðfesti í gær að bankinn væri í söluferli. Sérfræðingar áætla, að söluverð bankans verði á bilinu 4-6 milljarðar danskra króna, jafnvirði 80-120 milljarða króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















