Vilja að skattabreytingar gangi til baka

stækka

mbl.is/Golli

Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að flestar þær breytingar sem gerðar voru á síðasta ári á skattalegu umhverfi atvinnulífsins gangi til baka eða verði breytt. Þetta kemur fram á vef Samtakanna.

„Þær eru flestar til þess fallnar að draga úr fjárfestingum og vilja til þátttöku í atvinnurekstri. Sérstaklega á þetta við um breytingar sem ekki skila ríkissjóði ætluðum tekjum en valda sjálfstætt starfandi einstaklingum, fyrirtækjum og ríkissjóði kostnaðarauka og óhagræði," segir á vef SA.

Stefna að hækka skatta um 11 milljarða til viðbótar

Samtök atvinnulífsins segja að á fundum samráðshóps fjármálaráðuneytisins hafi komið fram að það sé stefna ríkisstjórnarinnar að hækka skatta um 11 milljarða króna til viðbótar við fyrri skattahækkanir.

Samtök atvinnulífsins leggjast gegn þessum hugmyndum. Samtök atvinnulífsins vara sérstaklega við því að hækka skatta sem hafa bein neikvæð áhrif á fjárfestingu í atvinnulífinu. Þá er fyrst og fremst átt við tekjuskatthlutfall fyrirtækja og fjármagnstekjuskatt.

  „Samtök atvinnulífsins hafa metið áhrif aðgerða frá miðju ári 2009 til lækkunar á halla ríkissjóðs í fjárlögum 2010 þannig að skattahækkanir standi fyrir um 58% af heild en útgjaldalækkanir fyrir um 42%.

Mat SA byggir á áhrifum skattahækkana á tekjur ríkissjóð að óbreyttum tekjum heimila og fyrirtækja, neyslu og fjárfestingu. Stjórnvöld halda hinu gagnstæða fram og telja hlut skattahækkana mun minni en gjaldalækkana og byggja á gögnum um áætlaðar og innheimtar skatttekjur ríkissjóðs.

Samkvæmt þeirri nálgun verður mat á skattahækkun lægra ef skattstofnarnir, þ.e. tekjur, neysla og fjárfesting, dragast saman. Samkvæmt því er hækkun tekjuskatts fyrirtækja úr 15% í 18% ekki skattahækkun þar sem hagnaður fyrirtækja dróst saman milli ára.

Samtök atvinnulífsins hafna slíkri nálgun og leggja áherslu á að svigrúm til skattahækkana sé fullnýtt á tímabilinu 2009-2011 samkvæmt samkomulagi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í júní 2009 og að bættri afkomu ríkissjóðs árið 2011 verði að ná með gjaldalækkunum og tekjum samfara hagvexti," segir á vef SA.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir