Hægir á efnahagsbatanum
Veikleikar í efnahagslífi í Bandaríkjunum hafa neikvæð áhrif á efnahagskerfi heimsins. Barack Obama forseti segir að árangur hafi náðst en viðurkennir að meira þurfi að koma til áður en efnahagslífið nái sér á skrið. JASON REED
Líkur eru á að vöxtur í efnahagskerfi heimsins minnki þegar líður á þetta ár. Þetta er mat Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Ástæðan fyrir þessu eru m.a. veikleikar í bankakerfinu.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hvetur til þess að stjórnvöld takist á við halla á rekstri hins opinbera. Sjóðurinn telur að eitt af því sem gæti haft neikvæð áhrif á efnahagskerfið væri ef fasteignaverð í Bandaríkjunum heldur áfram að lækka. Efnahagskreppan átti einmitt upptök í fasteignamarkaðinum í Bandaríkjunum. Óttast er að fleiri Bandaríkjamenn geti ekki greitt af lánum sínum sem aftur myndi hafa áhrif á fasteignaverð. Illa hefur gengið að ná niður atvinnuleysi í Bandaríkjunum sem hefur áhrif á greiðslugetu fólks.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn telur að lönd í Asíu eigi að leitast við að
auka eftirspurn á heimamarkaði í stað þess að einbeita sér að
útflutningi.



















