Lárus of tengdur eigendum Glitnis
Alexander K. Guðmundsson, sem var fjármálastjóri Glitnis frá júní 2007 til maí 2008, segir í eiðsvarinni yfirlýsingu, sem lögð hefur verið fyrir dómstól í New York, að hann telji að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi haft mikil áhrif á ákvarðanir Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis.
Alexander lýsir meðal annars þeirri skoðun sinni, að Lárus Welding, sem var ráðinn forstjóri Glitnis í apríl 2007, hafi verið of ungur og óreyndur til að stýra alþjóðlegu fjármálafyrirtæki eins og Glitnir var á þeim tíma. Alexander segist raunar sjálfur hafa haft takmarkaða reynslu á ýmsum sviðum rekstrarins.
Alexander segir, að Lárus hafi beitt áhrifum sínum innan lánanefndar Glitnis og hann hafi lagt áherslu á að lánað yrði til Baugs, FL Group og annarra fjárfestingarfélaga. Segist Alexander hafa talið, að Lárus væri of tengdur eigendum bankans og að bankinn lánaði of mikið til tengdra aðila. Segist hann hafa rætt þetta ítrekað við Lárus.
Þá kemur fram í vitnisburði Alexanders, að hann hafi gert sér æ betur grein fyrir því að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi haft bein samskipti við Lárus Welding og skipt sér af rekstri bankans.
„Að auki varð mér ljóst, að einhver utan innsta hrings Weldings í bankanum hafði mikil áhrif á þankagang hans. Ég taldi þá að hugsanlega væru eigendur bankans að þrýsta á hann. Til dæmis gerðist það stundum yfir helgi, að Welding skipti algerlega um skoðun á máli, sem við höfðum afgreitt í vikunni á undan," segir Alexander í yfirlýsingunni.
Hann segist einnig telja að FL Group hafi haft áhrif á Lárus og hann viti, að Lárus hafi í tvö skipti árin 2007 og 2008 sýnt stjórnendum FL Group uppgjör bankans áður en það var gert opinbert. Þá hafi lán til FL Group farið vaxandi síðari hluta ársins 2007 og einnig hlutabréfaeign Glitnis í FL Group á sama tíma og fjárhagsleg staða FL Group var að veikjast.
Alexander segist einnig hafa verið andvígur því hvernig því fé var varið, sem aflað var í skuldabréfaútboði Glitnis í New York 2007, og skaðabótamál slitastjórnar snýst um. Nota hefði átt féð til að styrkja lausafjárstöðu Glitnis en ekki lána það áfram til Baugs, FL Group og Fons.



















