Kortavelta eykst að raungildi
Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun í ágúst nam kreditkortavelta 26,9 milljöröðum króna og jókst um 1,4 milljarða frá fyrri mánuði. Samanborið við sama mánuð fyrra árs jafngildir það 13,6% aukningu í krónum talið, en að raungildi jókst kreditkortavelta um 10,9%.
Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka, að þetta sé mesta aukning sem orðið hafi í kreditkortaveltu að raungildi frá hruni og mikill viðsnúningur frá því sem áður var. Til samanburðar hafi kreditkortaveltan dregist saman um rétt tæp 30% að raungildi á milli ára í ágúst í fyrra.
Íslandsbanki segir, að kortavelta gefi góða vísbendingu um þróun einkaneyslu og á öðrum ársfjórðungi dróst einkaneysla saman um 2,1% frá sama fjórðungi fyrra árs sem benti til þess að landsmenn sýndu enn mikið aðhald í heimilisbókhaldinu og að skýr viðsnúningur væri enn ekki kominn fram. Debetkortaveltan í ágústmánuði nam rétt rúmum 34 milljörðum sem er aukning um 2,4% frá fyrri mánuði í krónum talið.
Sé litið á raunbreytingu kredit- og debetkorta í innlendum búðum varð 5,9% aukning í ágúst samanborið við 16% samdrátt á sama tíma fyrir ári. Íslandsbanki segir, að þessi þróun gefi því einnig vísbendingu um að einkaneysla sé nú að taka við sér á þriðja ársfjórðungi og hafi náð botni.



















