10-11 til sölu

stækka

Þorkell Þorkelsson

Arion banki hefur ákveðið að  færa rekstrarfélag 10-11 út úr Hagasamstæðunni og selja í opnu söluferli. Er gert  ráð fyrir að fyrirtækið fari í sölu á næstu mánuðum og segist bankinn hafa  orðið þess áskynja að undanförnu, að mikill áhugi sé á félaginu.

Fram kemur í tilkynningu frá Arion banka, að með þessum breytingum fækki matvöruverslunum í eigu Haga um röskan þriðjung.  Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningunni, að það sé auðvitað ákveðinn liður í endurreisn íslensks viðskiptalífs að koma verslunum Haga í eðlilegan farveg. Með því að selja 23 verslanir 10-11 sér gefist fleiri aðilum kostur á að koma inn á íslenska matvörumarkaðinn. 

Undirbúningur að sölunni hófst fyrr á þessu ári þegar Högum var kipt upp í Haga verslanir ehf. og Rekstrarfélag 10-11 ehf. Miðaðist sú skipting við 1. mars. Var siðarnefnda félagið síðan flutt í Eignabjarg ehf., eignarhaldsfélag Arion banka.

Eignabjarg hefur falið fyrirtækjaráðgjöf bankans að hefja undirbúning að sölu á  öllum hlutum eignarhaldsfélagsins í rekstrarfélagi 10-11. Unnið er að aðskilnaði félagsins frá Hagasamstæðunni og gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um endanlega tilhögun og framkvæmd söluferlis á næstu vikum.

Verslanir 10-11 hafa verið reknar frá árinu 1991 og verið hluti af  Hagasamstæðunni frá árinu 1999. Nú eru reknar 23 verslanir undir nafni 10-11 víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, í Reykjanesbæ og á Akureyri og starfa þar samtals um 230 starfsmenn. 
 
Í sátt Samkeppniseftirlitsins og Arion banka, sem gerð var í kjölfar yfirtöku bankans á Högum, beindi Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til bankans að kanna möguleika á því að selja Haga í fleiri en einum hluta í því skyni að auka samkeppni. Þeim tilmælunum væri þó ekki ætlað að víkja til hliðar augljósum hagsmunum af því að hámarka verðmæti og tryggja hagsmuni bankans.
 
Segir Arion banki að sölu á 10-11 verslunum Haga sé þannig m.a. ætlað að dreifa eignarhaldi á matvörumarkaði og gefist fleiri aðilum nú kostur á að láta að sér kveða á þeim vettvangi en verið hefur. Þannig sé bankinn að koma til móts við sjónarmið samkeppni án þess að fórna fjárhagslegum hagsmunum.

Baugur keypti 10-11 árið 1999, en á þeim tíma rak fyrirtækið þrettán verslanir á höfuðborgarsvæðinu og velti þremur milljörðum á ári hverju. Leiða má líkum að því að sú velta hafi aukist verulega síðan þá. Hlutdeild 10-11 í matvöruveltu Haga er tæp 7%.

Hagar eru í eigu Arionbanka, en bankinn leysti til sín 95,7% hlutafjár 1998 ehf., eignarhaldsfélags Haga, síðastliðið haust.  Eftir söluna á 10-11 fækkar matvöruverslunum Haga úr 61 í 38.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir