Cimber Sterling réttir aðeins úr kútnum
Tap sem nam 10,1 milljón danskra króna var hjá danska lággjaldaflugfélaginu Cimber Sterling á fyrsta fjórðungi nýs fjárhagsárs. Á sama tímabili á síðasta ári var 11,9 milljóna danskra króna tap á rekstri fyrirtækisins.
Cimber Sterling keypti flugvélar af þrotabúi flugfélagsins Sterling í byrjun síðasta árs. Félagið var síðan skráð í dönsku kauphöllina í lok ársins en síðan hefur reksturinn gengið illa og gengi hlutabréfa félagsins hrunið.
Uppgjörið nú er það besta sem Cimber Sterling hefur birt frá því félagið var skráð í kauphöll. Áætlanir félagsins fyrir árið allt gera ráð fyrir að rekstarhagnaður verði á bilinu 20-80 milljónir danskra króna og velta þess verði um 2 milljarðar danskra króna.
Lesa má út úr uppgjörinu, að hagnaður Cimber Sterling hefði verið um 1 milljón danskra króna á tímabilinu ef ekki hefði komið til flugbannsins í apríl vegna öskuskýsins frá Eyjafjallajökli.



















