Danska ríkið hefur neitunarvald um sölu FIH
Danska viðskiptablaðið Børsen segir, að danska ríkisstofnunin Financial Stabilitet, sem komið var á fót vegna fjármálakreppunnar til að aðstoða banka í erfiðleikum, geti hafnað hugsanlegum kaupenda að danska bankanum FIH Erhvervsbank, sem nú er í söluferli.
FIH er í eigu Kaupþings og þar með í umsjón slitanefndar íslenska banknans en Seðlabanki Íslands er með allsherjarveð í bréfum danska bankans.
Børsen segir í dag, að kveðið sé á um neitunarvald Finansiel Stabilitet vegna hugsanlegrar sölu í samningum um 50 milljarða danskra króna lán með ríkisábyrgð úr svonefndum Bankpakke II.
Endanlegur tilboðsfrestur í FIH rennur út á morgun, 16. september. Børsen hafi sett þann frest til að tryggja að sölu bankans geti verið lokið fyrir næstu mánaðamót en þá rennur út ótakmörkuð ábyrgð danska ríkisins á innistæðum í dönskum bönkum.
Segir blaðið, að danska ríkið vilji ekki eiga það á hættu, að viðskiptavinir FIH Erhvervsbank taki fé sitt út úr bankanum eftir mánaðamótin vegna. er allt kapp lagt á, að nýir og fjársterkir eigendur taki við bankanum fyrir mánaðamótin.



















