Viðskipti
| AFP
| 15.9.2010
| 6:50
Vilja rannsaka samstarfið frekar
Samkeppnisyfirvöld í Ástralíu hafa frestað því að taka ákvörðun um hvort þau heimili fyrirhugað samstarf námafyrirtækjanna BHP Billiton og Rio Tinto, móðurfélags álversins í Straumsvík, í járnvinnslu. Er það gert að beiðni fyrirtækjanna þar sem erlend stjórnvöld vilja skoða samninginn frekar.
Ekki hefur verið gefið upp hvenær samkeppnisyfirvöld munu segja sína skoðun þar sem erlend samkeppnisyfirvöld eru með málið í sínum höndum nú. Meðal annars skoðar Evrópusambandið samstarfið en stálframleiðendur bæði í Evrópu og Asíu hafa sett sig upp á móti honum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















