Viðskipti
| mbl
| 16.9.2010
| 19:49
Lífeyrissjóðir keyptu FIH
Tveir danskir lífeyrissjóðir, ATP og PFA, hafa ásamt sænska tryggingafélaginu Folksam keypt danska bankann FIH Erhvervsbank af skilanefnd Kaupþings. Þetta fullyrðir danska sjónvarpsstöðin TV2 en sjóðirnir hafa ekki viljað staðfesta fréttina.
PFA, ATP og Folksam stóðu saman að tilboði í FIH og öttu kappi við enska fjárfestingarsjóðinn Triton, sem áttti samvinnu við nokkra danska lífeyrissjóði um tilboð í bankann.
TV2 Finans segir, að gengið hafi verið frá samkomulaginu nú síðdegis á Hilton hótelinu á Kastrupflugvelli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















