Kaupþing selur veitingastaði
Breska veitingahúsakeðjan Bay Restaurant Group, sem er í eigu skilanefndar Kaupþings, hefur selt 22 veitingastaði keðjunnar á 19,5 milljónir punda, rúma 3,5 milljarða króna. Bay var áður í eigu bresk-íranska kaupsýslumannsins Roberts Tchenguiz.
Félög tengd Tchenguiz njóta þess vafasama heiðurs að vera langstærsti skuldari íslensku bankanna en þau skulduðu um 2,2 milljarða evra þegar íslensku bankarnir fóru í þrot haustið 2008. Þrátt fyrir það að skulda langmest allra þá var Kaupþing eini lánadrottinn þeirra á Íslandi.
Eftir endurskipulagningu eigna Tchenguiz í júlí 2009 þá eignaðist Kaupþing ásamt þýska bankanum Commerzbank Plato Company 3 sem er eignarhaldsfélag sem á bæði Bay og systurfélag Bay, T&C Pub Company.
Segir í tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings að undirbúningur sölu veitingastaðanna 22, sem heita ha ha bar & grill, hafi hafist í apríl sl. og bárust yfir 20 tilboð.
Enn eru 75 veitingastaðir sem nefnast La Tasca í eigu Bay. Flestir þeirra eru í Bretlandi.




















