Beðið eftir hinum matsfyrirtækjunum

mbl.is

Greining Íslandsbanka fjallar í Morgunkorni dagsins um tilkynningu lánshæfismatsfyrirtækisins Moody's þar sem fram kemur að þrátt fyrir að nýlegur dómur Hæstaréttar um viðeigandi vexti gengisbundinna lána dragi úr óvissu þá séu enn of miklar blikur á lofti til þess að hægt sé að breyta neikvæðum horfum fyrir Baa3-einkunn ríkissjóðs Íslands í stöðugar. Veltir Greining fyrir sér hvað hin matsfyrirtækin, það er Fitch og S&P muni gera varðandi mat á Íslandi.

Ein megin ástæða þess að Moody's breytti horfum lánshæfiseinkunna ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar þann 29. júlí síðastliðinn sú óvissa sem dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengisbundinna lána skapaði fyrir bankakerfið. Óvissan gæti kallað á frekari fjármögnun frá ríkinu sem augljóslega hefði neikvæð áhrif á fjármál  hins opinbera sem og skuldastöðu.

Neikvætt að endurfjármögnun ÍLS ekki lokið

„Ljóst er að Moody´s telur þennan nýja dóm Hæstaréttar um gengisbundin lán jákvætt skref  við að draga úr óvissu en að það eitt og sér sé ekki nægjanlegt til þess að fyrirtækið ákveði að taka lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs af neikvæðum horfum.

Annað sem Moody´s nefndi að sé jákvætt er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) stefnir að ljúka sinni þriðju endurskoðun fyrir septemberlok og í kjölfarið verður sá hluti láns AGS sem tengist þessum áfanga greiddur út, samtals 160 m. bandaríkjadala.

Á hinn bóginn er sú mikla óvissa sem umliggur íslenska efnahagslífið og framtíðarhorfur þess neikvæð. Þessi óvissa er margþætt og nefndi fyrirtækið hugsanlega yfirvofandi málsóknir vegna gengisbundinna lána sem tafið gætu enn fyrir því að endurskipulagning á skuldum einstaklinga og fyrirtækja náist að fullu, sem aftur hefur neikvæð áhrif á hagvöxt.

Einnig er Icesave deilan enn óleyst sem og endurfjármögnun Íbúðalánasjóðs, en henni þarf að vera lokið fyrir árslok. Til viðbótar telur Moody´s að enn sé gríðarleg óvissa uppi um efnahagslegar horfur fyrir Ísland þar sem landsframleiðslutölurnar fyrir síðasta ár voru endurskoðaðar og benda nú til þess að enn hafi töluverður samdráttur verið í hagkerfinu síðustu ársfjórðunga," segir í Morgunkorni.

Moody's nefnir þrennt sem gætti leitt lækkunar á lánshæfiseinkunnum ríkissjóðs. Í fyrsta lagi getur áframhaldandi óvissa haft neikvæð áhrif á raunhagkerfið. Í öðru lagi gætu frekari áföll í bankakerfinu leitt til þess að ríkið yrði að dæla enn frekara fjármagni til þess, sem eykur enn á þegar háa skuldastöðu ríkisins. Í þriðja lagi nefnir það þrýsting á lausafjárstöðu í erlendum gjaldeyri, sem gæti tengst því að Icesave deilan er óleyst. Það sem hefur jákvæð áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs eru merki um viðvarandi bata hagkerfisins og árangursríkar lausnir á hinum ýmsu málum sem óvissa umliggur.

Afar neikvætt ef fleiri setja Ísland í spákaupmennskuflokk

„Forvitnilegt verður að sjá hvort hin stóru matsfyrirtækin, þ.e. Fitch Ratings og Standard & Poor´s (S&P), fari að láta á sér kveða. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt er þegar í spákaupmennskuflokki hjá Fitch og hefur jafnframt verið á neikvæðum horfum frá því í janúar síðastliðinn. Hjá S&P er lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir sama flokk skuldbindinga BBB- og þar með þrepi frá því að detta niður í spákaupmennskuflokk, líkt og hjá Moody´s.

Horfur um einkunnir ríkissjóðs hjá S&P eru jafnframt einnig neikvæðar. Við teljum ekki líklegt að matsfyrirtækin lækki lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs í bráð miðað við atburðarás síðasta mánuðinn, þ.e. gengisdóminn, Icesave á dagskrá og líkur á að þriðja endurskoðun sé í höfn.

Það gefur auga leið að það væri afar neikvætt ef ríkissjóður myndi falla niður í spákaupmennskuflokk hjá öðru lánshæfismatsfyrirtæki en Fitch, enda myndi slíkt tefja fyrir því að ríkissjóður gæti sótt sér fé á erlenda markaði og grafa undan tiltrú fjárfesta á Íslandi," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir