Viðskipti
| mbl
| 21.9.2010
| 20:54
Blendnar tilfinningar í kjölfar yfirlýsingar peningastefnunefndar
Litlar breytingar urðu á helstu hlutabréfavísitölum vestanhafs í kvöld eftir að peningastefnunefnd Seðlabanka Bandaríkjanna kynnti yfirlýsingu sína um efnahagsmál landsins. Það að nefndin ákvað að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum kom fáum á óvart en það vakti ugg í brjósti ýmissa að lesa viðvörun um að enn hafi hægt á efnahagsbatanum.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 7,41 stig eða 0,07% og er 10.761,03 stig. Nasdaq lækkaði um 0,28% og S&P 500 lækkaði um 0,26%.
Dagurinn var ansi viðburðaríkur á markaði vestanhafs. Fljótlega eftir að viðskipti hófust var greint frá því að mikil aukning hafi verið í nýbyggingum í ágústmánuði. Er aukningin rúm 10% sem er mun meira heldur vænst hafði verið. Þrátt fyrir þessar jákvæðu fregnir virtust þær skipta litlu máli fyrir fjárfesta. Allir virtust bíða með öndina í hálsinum eftir niðurstöðu fundar peningastefnunefndarinnar.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Bandaríkjanna segir í yfirlýsingu sinni að ekki verði hikað við að grípa til aðgerða ef þörf þykir til að styðja við bakið á efnahagskerfi landsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















