FIH þarf að endurfjármagna 1000 milljarða lán
Danski bankinn FIH Erhvervsbank, sem skilanefnd Kaupþings seldi um helgina, vonast til að fá góða lánshæfiseinkunn hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum svo auðveldara verði fyrir bankann að endurfjármagna 50 milljarða danskra króna skuldir bankans, um 1000 milljarða íslenskra króna, á næstu þremur árum.
Þetta kemur fram í viðtali, sem vefur danska viðskiptablaðsins Børsen tók við Bjarne Graven Larsen, framkvæmdastjóra ATP, sem fór fyrir kaupendahópnum.
Börsen segir, að lánshæfiseinkunnir FIH hafi lækkað vegna eignarhaldsins þegar íslenska bankakerfið hrundi. Nú vonast bankinn til að fá einkunnir í A-flokki sem þýðir, að hann fær betri kjör á ný lán.
Henrik Sjøgreen, forstjóri FIH, sagði við Børsen, að það hefði haft hamlandi áhrif á rekstur bankans að hann var í eigu þrotabús. Það hefði í raun verið eins og að taka þátt í Tour de France á hjóli með sprungnum dekkjum.



















