Viðskipti
| AFP
| 21.9.2010
| 7:04
Hráolíuverð lækkar lítillega
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun en síðar í dag hefst fundur peningastefnunefndar Seðlabanka Bandaríkjanna. Efnahagsástandið í Bandaríkjunum hefur mikil áhrif á verð á hráolíu enda landið stærsta hagkerfi og um leið mesti notandi olíu í heiminum.
Verð á hráolíu til afhendingar í október lækkaði um 67 sent í New York og er 74,19 dalir tunnan.
Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í nóvember lækkaði um 9 sent og er 79,23 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















