Afnám gjaldeyrishafta ofarlega í huga seðlabanka
Greining Íslandsbanka segir að Seðlabanki Íslands virðist nú leggja talsvert meiri áherslu á yfirvofandi afnám gjaldeyrishafta en raunin var í ágúst. Telur deildin það eina helstu skýringuna á því hvers vegna vextir bankans voru ekki lækkaðir meira en raun ber vitni í morgun. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði vexti bankans um 0,75 prósentur í morgun.
„Spyrja má á hvern eigi að skrifa þann mun sem undanfarið hefur verið á væntingum markaðsaðila um vaxtaákvarðanir og niðurstöðu peningastefnunefndar eftir nokkuð fyrirsjáanlegar vaxtaákvarðanir fyrr á árinu.
Í ágúst var þannig tekið öllu stærra lækkunarskref en vænst hafði verið, öfugt við niðurstöðuna í dag. Þó hefur í millitíðinni ýmislegt þróast á þann veg sem ætti að vera Seðlabankamönnum efni til að ákveða lægri vexti en hærri.
Má þar nefna nýlegar landsframleiðslutölur Hagstofunnar, sem draga upp mynd af kaldara hagkerfi en áður var talið og dóm Hæstaréttar um vexti á gengistryggðum lánum, en dómurinn og viðbrögð stjórnvalda hafa líklega verið þau hagstæðustu sem Seðlabankamenn gátu vonast eftir varðandi stöðugleika fjármálakerfisins, stöðu heimilanna og aukið bit vaxta bankans.
Almennt er talið að gegnsæi og tiltekinn fyrirsjáanleiki séu afar æskilegir eiginleikar í starfsemi seðlabanka, enda byggja þeir peningastefnu sína ekki síst á væntingastjórnun um vaxtaþróun í framtíð. Er vonandi að markaðinum veitist auðveldara að lesa í orð og gerðir bankans í framtíðinni, enda öllum aðilum til hagsbóta," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.



















