Viðskipti
| mbl
| 22.9.2010
| 16:08
Miklar sviptingar á gengi Bandaríkjadals
Reuters
Miklar hreyfingar hafa verið á milli evru og Bandaríkjadals í dag en ekki hefur verið mikil velta með íslenskar krónur. Gengi Bandaríkjadals er 115,30 krónur en var 116,83 krónur við lokun markaða í gær. Evran hefur styrkst og er 154,30 krónur, pundið er 180,42 krónur og danska krónan er 20,71 króna.
Gengisvísitala krónunnar er 207,30 stig og hefur breyst lítið milli daga, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















