Viðskipti
| AFP
| 22.9.2010
| 10:00
Zara malar gull
Spænska fyrirtækið Inditex sem á og rekur Zöru, hagnaðist um 628 milljónir evra, 96,6 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Er þetta 68% aukning milli ára en á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 374,8 milljónum evra. Inditex er stærsta fataverslunarfyrirtæki heims.
Er hagnaðurinn mun meiri heldur en sérfræðingar sem Dow Jones fréttaveitan leitaði til hafði spáð. Að meðaltali spáðu þeir því að hagnaðurinn næmi 573,2 milljónum evra.
Sala Inditex nam 5,53 milljörðum evra sem er 14% aukning milli ára. Inditex opnaði 173 verslanir í 37 löndum á fyrstu sex mánuðum ársins. Þar á meðal fyrstu verslun fyrirtækisins í Indlandi. Alls eru verslanir Inditex 4.780 talsins í 77 löndum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















