Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.9.2010
| 5:30
Ætluðu að stofna Best Price í London
Áætlanir um að opna verslanakeðjuna Best Price í London í anda íslensku Bónuskeðjunnar voru uppi á borðum hjá þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Gunnari Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, og Don McCarthy, fyrrverandi stjórnarmanni í Baugi.
Þetta kemur fram í eiðsvörnum vitnisburði Jóns Ásgeirs fyrir dómstól í New York. Þeir hafi síðan fallið frá þessum áformum þar sem skilanefnd Landsbankans var lítt hrifin af þeim. Skilanefndin er stór hluthafi í Iceland Foods, en nýja verslanakeðjan hefði orðið keppinautur hennar, að því er fram kemur í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















