Ekki upplýst um eignarhlut Deutsche Bank í Actavis
Talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar segir, að ekki sé gefið upp hvaða breytingar hefðu verið gerðar á eignarhaldi Actavis við yfirtöku þýska bankans Deutsche Bank á félaginu og hversu stóran hlut bankinn kynni að eiga í því.
Þá hafa heldur ekki fengist upplýsingar um það hvaða áhrif þessar breytingar kunna að hafa haft á hlut Björgólfs Thors í Actavis. Ekki náðist í talsmann Actavis.
Ekki yfirtaka á Actavis
Reutersfréttastofan sagði í gærkvöldi að Deutsche Bank hefði fengi samþykki frá samkeppnisyfirvöldum
Evrópusambandsins fyrir yfirtöku bankans á íslenska
samheitalyfjafyrirtækinu Actavis og vitnaði í tilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB.
Ekki er rétt að tala um að Deutsche Bank hafi tekið yfir Actavis, að mati Ragnhildar Sverrisdóttur, talsmanns Björgólfs Thors Björgólfssonar. Hún segir að í raun hafi engar breytingar átt sér stað, um fjárhagslega endurskipulagningu hafi verið að ræða og Björgólfur Thor verði áfram stjórnarformaður félagsins eins og áður.



















