Gögn fölsuð segir fyrrverandi stjórnarmaður
Stjórn FL Group árið 2005:Kevin Stanford varamaður, Magnús Ármann, Sigurður Bollason, Þorsteinn M. Jónsson, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Smári S. Sigurðsson varamaður. Á myndina vantar þá Einar Ólafsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. mbl.is/Jim Smart
Í fundargerð stjórnarfundar félagsins frá 21. október 2005, sem Viðskiptablaðið hefur undir höndum, segir að hann hafi ekki setið fundinn.
Í fundargerðinni kemur fram að stjórn FL Group hafi samþykkt kaupin og veitt Hannesi Smárasyni, forstjóra félagsins á þeim tíma, fullt umboð til að undirrita kaupsamninginn.
Einar segir í viðtali við Viðskiptablaðið að sú ákvörðun hafi þó ekki verið einróma. „Fundurinn var haldinn seinni part dags á föstudegi á Hótel Loftleiðum. Þar var farið yfir þau mál sem voru á dagskrá og svo var Sterling-málið kynnt. Þegar kom að því að ganga til atkvæða um kaupin á Sterling þá sagði ég nei. Ég sagði að sjálfs mín vegna og annarra hluthafa vildi ég ekki bera ábyrgð á þessum kaupum. Ef þeir [innsk. blaðam. aðrir stjórnarmenn í FL Group] myndu, í krafti meirihluta síns, keyra þetta mál áfram þá myndi ég segja mig úr stjórninni.“
Segir að Gunnar Sturluson hafi skráð fundargerð
Fundinn sátu stjórnarmennirnir Skarphéðinn Berg Steinarsson (stjórnarformaður), Þorsteinn M. Jónsson, Hannes Smárason, Magnús Ármann, Sigurður Bollason og Jón Ásgeir Jóhannesson. Þeir tengdust allir sterkum viðskiptaböndum.
Auk þeirra sex kom Jón Sigurðsson, þá framkvæmdastjóri hjá FL Group og síðar forstjóri félagsins, á fundinn auk Gunnars Sturlusonar, hæstaréttarlögmanns og faglegs framkvæmdastjóra LOGOS, sem ritaði fundargerðina. Það er því Gunnar sem skráði að Einar hafi boðað forföll þegar hann heldur því sjálfur fram að hann hafi setið fundinn.
Undrast ekki afdrif þeirra sem tengdust NTH
Einar segist ekki vera hissa á því hvernig fór fyrir þeim félögum sem tengdust Northern Travel Holding (NTH), en þau eru flest komin í þrot eða endurskipulagningu í dag. „Ég skildi aldrei þennan spuna með Northern Travel Holding. Ég er einfaldlega ekki nógu glöggur til þess. Ég vissi frá fyrsta degi að það væri ekkert vit í þessu. Fyrirtækið [innsk. blaðam. Sterling] var gjörsamlega dauðadæmt. Ragnhildur Geirsdóttir [fyrrum forstjóri FL Group ] vissi það, og ég vissi það líka,“segir Einar í viðtali við Viðskiptablaðið sem fjallar áfram um málefni FL Group í dag.



















