Viðskipti
| mbl
| 27.9.2010
| 17:27
Fjögur ný samheitalyf frá Actavis
Fjögur
ný samheitalyf frá Actavis komu á markað á Íslandi í ágúst og
september. Um er að ræða Topiramat sem gefið er við flogaveiki og
mígreni, Mycophenolatmofetil sem notað er við líffæraígræðslur,
augnlyfið Latanoprost Actavis og Sildenafil Actavis sem er samheitalyf
frumlyfsins Viagra. Öll lyfin eru lyfseðilsskyld.
Fram kemur í tilkynningu, að Actavis hafi nú markaðssett 12 ný samheitalyf á Íslandi á árinu. Hin eru m.a. geðlyfið Esopram, krabbameinslyfið Paclitaxel, blóðlyfið Clopidogrel og veirulyfið Valaciclovir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















