Landsvirkjun fær meira að láni

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is/Rax

Landsvirkjun hefur samið um stækkun á fyrri skuldabréfaútgáfu úr 100 í 150  milljónir Bandaríkjadala, 17,2 milljarða króna. Er það þýski bankinn Deutsche Bank sem hefur milligöngu um skuldabréfaútgáfuna og eru kaupendur erlendir fjárfestar. Annað er óbreytt, lánstími er fimm ár og bera skuldabréfin 6,5% fasta vexti.

Landsvirkjun langt komin með endurfjármögnun til langtíma

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segir í fréttatilkynningu stækkunina mjög jákvæða fyrir fyrirtækið: „Þessi stækkun er mjög jákvæð fyrir Landsvirkjun og endurspeglar góðar viðtökur við fyrra útboði. Það er mjög jákvætt að fá fleiri fjárfesta að borðinu og ljóst að Landsvirkjun hefur tekist að byggja upp traust á fyrirtækinu sem sýnir sig í þessari umframeftirspurn".

Landsvirkjun hefur nú aðgang að um 500 milljónum Bandaríkjadala til að mæta skuldbindingum næstu ára. Fyrirtækið er nú nálægt því að ljúka langtíma endurfjármögnun miðað við núverandi rekstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK