Viðskipti
| mbl
| 28.9.2010
| 8:23
Vagner í samstarf við Straum og Stoðir
Ole Vagner. mbl.is/Eyþór
Að sögn viðskiptavefjar Berlingske Tidende hafa viðskiptabankar Nordicom krafist þess að félagið afli 100 milljóna danskra króna fyrir mánaðamótin.
Blaðið segir, að HFI Invest, eignarhaldsfélag Ole Vagners, aðaleiganda Nordicom, Straumur og Stoðir leggi sameiginlega fram 50 milljónir danskra króna. Það er þó háð því, að danska fjármálaeftirlitið veiti undanþágu frá því að þessi félög þurfi að gera yfirtökutilboð í félagið.
Ole Vagner stofnaði fasteignafélagið Keops á sínum tíma. Íslenska félagið FL Group, forveri Stoða, og fleiri keyptu félagið. FL Group keypti síðan bréf í Nordicom og stefndi að yfirtöku þess félags um tíma. Straumur eignaðist hlut í félaginu vegna veðkalls.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















