Endurskipulagning gæti kostað 30 milljarða evra
Kostnaðurinn við endurskipulagningu írska bankans Anglo Irish Bank gæti numið um 30 milljörðum evra, 4.638 milljarða króna, samkvæmt fréttum írskra fjölmiðla í dag. Mikil reiði er meðal almennings á Írlandi þar sem líklegt þykir að stjórnvöld þurfi að setja mikið fjármagn inn í bankann svo hægt verði að bjarga rekstri hans á sama tíma og kjör almennings versna jafnt og þétt.
Er þess vænst að tilkynnt verði um það á morgun hvað björgun bankans kostar en hann hefur verið þjóðnýttur.
Í Irish Times eru leiddar líkur að því að kostnaðurinn gæti numið 28-29 milljörðum evra eða jafnvel yfir 30 milljörðum evra.
Nú þegar hefur ríkisstjórn Írlands skuldbundið sig til þess að setja 24,5 milljarða evra inn í bankann og hefur þegar lagt út 22,88 milljarða evra.



















