Söluferli Límtrés Vírnets hafið
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í iðnfyrirtækinu Límtré Vírnet ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá NBI. Áður hafði verið greint frá því að selja ætti fyrirtækið.
Starfseiningar Límtrés Vírnets, Vírnet í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleiningar í Reykholti, voru hluti af samstæðu BM Vallár hf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í maí 2010. Nýstofnað rekstrarfélag í eigu Landsbankans keypti starfseiningar Límtrés Vírnets af þrotabúi BM Vallár hf. og lýsti því jafnframt yfir að Landsbankinn hygðist selja reksturinn innan 6 mánaða.
Söluferlið hófst í dag og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 250 milljónir króna.
Þeir fjárfestar sem uppfylla skilyrði fyrir þátttöku á fyrra stigi söluferlisins fá afhent ítarleg kynningargögn um Límtré Vírnet hf. Gögnin verða aðgengileg frá og með miðvikudeginum 6. október 2010. Á grundvelli þeirra gagna skulu bjóðendur gera óskuldbindandi tilboð. Frestur til að skila því rennur út kl. 12:00, miðvikudaginn 20. október 2010. Stefnt er að því að ljúka söluferlinu fyrir lok nóvember 2010, samkvæmt fréttatilkynningu.



















