Eik fær lengri frest
Danska fjármálaeftirlitið veitti í kvöld Eik banka í Færeyjum frest til 8. október til að útvega aukið hlutafé. Fyrr í kvöld var tilkynnt, að danska fjármálatryggingastofnunin Finansiel Stabiletet myndi yfirtaka rekstur bankans.
Óvíst er hvort þessi lengdi frestur muni breyta nokkru um það að dönsk fjármálayfirvöld yfirtaki Eik. Færeyskir fjölmiðlar hafa í kvöld eftir heimildarmönnum í Eik, að þetta sé í raun aðeins þáttur í því ferli. Gert er ráð fyrir að haldinn verði aðalfundur í Eik áður en fresturinn rennur út og þar eigi að samþykkja skilyrðin fyrir því að Finansial Stabilitet yfirtaki bankann.
Fram kom á blaðamannafundi, sem Odd Bjellvåg, stjórnarformaður Eikar, hélt í kvöld, að leitað hefði verið til Kaupþings á Íslandi um að leggja fram hlutafé í bankann, 600 milljónir danskra króna. Bjellvåg sagði að Kaupþing hefði sett það skilyrði, að færeyski hluti Eikar yrði skilinn frá hinum danska. Sama skilyrði hefði færeyska tryggingafélagið TF Holding sett fyrir 400 milljóna danskra króna hlutafjárframlagi. Dönsk fjármálayfirvöld vildu hins vegar ekki fallast á að danskt dótturfélag Eikar yrði skilið frá færeyska móðurfélaginu.
Danska fjármálaeftirlitið krafðist þess að Eik útvegaði 2,5 milljarða danskra króna í nýtt hlutafé til að tryggja rekstur bankans bæði í Færeyjum og Danmörku. Á vefnum olivant.fo er haft eftir Odd Bjellvåg, að hefði bankinn fengið lengri frest en 57 tíma til að útvega þetta hlutafé hefði það án efa tekist.
„Ég tel að við höfum fengið ótrúlega gott tilboð frá Íslandi," sagði hann á blaðamannafundinum. Bankanum hefði tekist að fá vilyrði fyrir 1 milljarði danskra á þessum rúmu tveimur sólarhringum og hefði án efa tekist að afla 1,2 milljarða til viðbótar hefði tíminn verið nægur.
Slitastjórn Kaupþings á lán og eignir í Færeyjum og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leituðu Færeyingar til slitastjórnar Kaupþings í dag. Þeir fengu þau svör að slitastjórnin væri með öðrum tilbúin til að koma að endurreisn Eikar. Atburðarásin varð hins vegar hröð í Færeyjum í dag og því reyndi aldrei á vilja Kaupþings.
Haft er eftir Bjellvåg, að möguleikar Íslendinga á fjárfestingum séu ekki fyrir hendi nema helst í Færeyjum vegna viðskiptasamnings Íslands og Færeyja. Þá nefndi hann, að allt væri fullt af peningum í Noregi.



















