Viðskipti
| mbl
| 30.9.2010
| 9:00
Exeter-mál tekið fyrir í héraðsdómi
Fyrsta og enn sem komið er eina málið sem embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins hefur gefið út ákæru í verður tekið fyrir í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Um er að ræða mál, sem höfðað hefur verið gegn Jóni Þorsteinni Jónssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Byrs, Ragnari Zophoníasi Guðjónssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra, og Styrmi Þór Bragasyni, fyrrverandi forstjóra MP banka.
Eru þeir ákærðir fyrir að hafa framið umboðssvik með 1,1 milljarðs króna lánveitingu Byrs til Exeter Holding. Ákæra var gefin út á hendur þremenningunum þann 28. júní. Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara, sækir málið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















