Dalur ekki lægri gagnvart krónu í 20 mánuði
Gengi Bandaríkjadals lækkaði í gær gagnvart öllum helstu myntum og í kjölfarið fór dalurinn niður fyrir 113 krónur. Hann kostar nú 112,51 kr. og hefur ekki kostað svo lítið síðan í febrúar á síðasta ári. Gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadal hefur nú styrkst um 4% frá því í septemberbyrjun og um 12% frá júníbyrjun.
Fór úr 82 krónum í 147 krónur á nokkrum mánuðum
Til upprifjunar kostaði dalurinn fyrir hrun 82 krónur en dýrastur var hann fyrir Íslendinga í árslok 2008 þegar reiða þurfti fram 147 kr. til að eignast einn dal, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka.
„Dollarinn hefur verið að veikjast gagnvart evru undanfarið og kostar evran nú þegar þetta er ritað 1.3728 dollara sem er hæsta gildi sem evru/dollar krossinn hefur tekið síðan í mars síðastliðnum. Verulega hefur þó hægt á hækkunarferli evru/dollars krossins undanfarið en ekki er talið ólíklegt að evran muni innan skamms kosta 1,4 dollara. Það sem veikir dollarinn er sem fyrr áhyggjur af stöðu efnahagsmála vestanhafs og hægur bati bandaríska hagkerfisins," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















